Glugginn

J. Viðar

Sundið var mjög þraungt,

og ef tveir menn ötluðu þessa leið saman

urðu þeir að ganga í halarófu.

Við enda einstigisins birtist bakhliðin

á rauðmáluðu tréhúsi og hafði tvo glugga

og eldhúsdyr með bíslagi.

Þetta er gluggi Erlendar.

Upp þetta dimma sund: þar lá mín leið

margt liðið kvöld;

og sæi ég ljós, þá var sem vanda og neyð

væri nú lyft af heilli öld.

Hér beið mín eftir amstur dags og önn

— eða utanför —

sú fylling vona er fæstum verður sönn,

að fá af vini örugg svör,

svo létti vafa og öllum ugg af þér

sem att þar hlé:

hver þögn fær óm; hvert orð ber epli í sér.

Ymur hið forna saungna tré.

Þar drífa guðir og gamlir prestar inn

og gyðjur lands,

afbrotamenn og börn fá bolla sinn

af besta vini sérhvers manns.

Og Steinar Steinn sem ljóðin las mér fyr

án lífsfögnuðs,

kom handkaldur upp sundið, drap á dyr

og drakk úr kaffibolla Guðs.

Ó mildu vitru augu, augna hnoss,

umliðna stund

þess ljóss er brann, sjá ennþá lýsirðu oss

upp þetta dimma sund.