Blítt er undir björkunum
Páll Ísólfsson
Ég beið þín lengi, lengi, mín liljan fríð,
stillti mín a strengi gegn stormum og hríð.
Ég beið þín undir björkunum í Bláskógahlíð.
Ég leiddi þig í lundinn, mín liljan fríð.
Sól skein á sundin um sumarlanga tið.
Og blærinn söng í bjórkunum í Bláskógahlíð.
Leggur loga bjarta, - mín liljan fríð,
frá hjarta til hjarta, um himinhvelin víð.
Og blítt er undir björkunum í Bláskógahlíð.