Í dag skein sól

Páll Ísólfsson

Í dag skein sól á sundin blá

og seiddi þá, er sæinn þrá,

og skipið lagði landi frá.

Hvað mundi fremur farmann gleðja.

Það syrtir að, er sumir kveðja.

Ég horfi ein á eftir þér,

og skipið ber þig burt frá mér.

Ég horfi ein við ystu sker,

því hugur minn er hjá þér bundinn.

En löng ernótt við lok uð sundin.

En ég skal biðja' og bíða

þín uns nóttin

dvín og dagur skín.

Þó aldrei rætist óskin mín,

til hinsta dags ég hrópa' og kalla,

svo heyrast skal um heima alla.