Mamma ætlar að sofna
S. Kaldalóns
Sestu hérna hjá mér
systir mín góð,
í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát, af því
að mamma ætlar að reyna sofna
rökkrinu í.
Mamma ætlar að sofna
og mamma er svo þreytt,
og sumir eiga sorgir
sem svefninn getur eytt.
Sumir eiga sorgir
og sumir eiga þrá,
sem aðeins í draumheimum
uppfyllast má.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð,
mamma ætlar að sofna
systir mín góð.