Stormar
S. Kaldalóns
Nú kólnar, þér, fugl minn,
það fýkur snjár og frostkuldinn magnast óðum.
Hve geigvænt að gist á þeim slóðum:
þar blæs um þig næðingur nístings sár,
svo napur, að helfrjósa grátin tár,
sem stökkv' af stirðnandi glóðum:
Ei stormurinn linnir á hljóðum:
Er stormur þitt tungumál, sterki Guð?
Er stjórn þín sem hríðir bylja
og hringiður sogandi hylja?
Mun eyðing þitt síðasta andsvar, Guð?
Er angist og reynsla þitt hjálpráð, Guð?
Ó, leyf mér þitt lögmál að skilja:
Ég lýt þínum heilaga vilja.