Suðurnesjamenn

S. Kaldalóns

Sæmd er hverri þjóð að eiga sægar pa' enn.

Ekki var að spauga með þá Útnesjamenn.

Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn

fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn.

Unnur bauð þeim faðm sinn svo ferlig og há;

kunnu þeir að beita hana

brögðum sinum þá.

Sagt hefur það...

Kunnu þeir að stýra og styrk var þeirra mund;

bárum ristu byrðingarnir

ólífisund.

Sagt hefur það...

Ekki er að spauga með íslenskt sjómannsblóð,

ólgandi sem hafið

og eldfjallaglóð.

Sagt hefur það...

Ásækið sem logi og áræðið sem brim,

hræðist hvorki brotsjó

né bálviðra glym.

Sagt hefur það...

Gull að sækja í greipar þeim geigvæna mar

ekki nema ofurmennum

ætlandi var.

Sagt hefur það...