Búðarvísa
E. Thoroddsen
Búðarí loftið hún Gunna upp gekk,
gráfíkjur nógar og sætabrauð fékk;
en Sigríður niðri í búðinni beið,
bylti við ströngum og léreftin sneið.
Fagurt er loftið og fullt er það ull,
fáséð mun Kristján sýna þar gull;
og lengi var Gunna í loftsölum há,
litverp í framan hún kemur þeim frá.
Síðan tók Kristján silki ágætt,
(selja þeir þess háttar öðrum á vætt)
og hvíslar að Gunnu: 'Á herðarnar þín
hafðu hann, fallegur stúlkurinn mín!
Missæl er þjóðin, oss dónunum dýr
dropinn oft gjörist og varningur nýr;
en ókeypis stúlkurnar fallegu fá
fyrirtaks klútana Danskinum hjá.